Lýsing
D3-vítamín er ómissandi vítamín sem verður til fyrst og fremst fyrir áhrif sólarljóssins á húðina, en húðin vinnur vítamínið úr sólarljósi. D3-vítamín stuðlar að vexti og viðhaldi beina. D3-vítamín gerir líkamanum kleift að nýta kalk og fosfór til að byggja upp bein með því að auka upptöku kalks og fosfórs frá þörmum. D3-vítamín er nauðsynlegt beinheilsu, fyrir heilbrigt ónæmiskerfi, geðheilsu og á þátt í að koma í veg fyrir ýmsa sjúkdóma. Ef við fáum ekki nægt sólarljós getur það leitt til D-vítamínskorts. Bioglan D3 vítamín hlaup innihalda 1000 IU af D3 vítamíni í hverju hlaupi. Hlaupin eru ljúffeng leið til að styðja við D3-vítamíni búskap líkamans. Bragðgóð vítamín-hlaup með dýrindis sítrónu bragði sem er auðvelt til inntöku. Einfaldlega borðið ráðlagðan dagskammt á hverjum degi.
D3 Vítamín getur hjálpað til við að:
- Viðhaldið eðlilega upptöku kalks
- Viðhaldið eðlilegan vöxt beina og tanna
- Viðhaldið eðlilegri virkni vöðva
- Stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins
Ráðlagður dagskammtur: Fullorðnir og börn (+12 ára), eitt hlaup á dag.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar